Tuesday, June 03, 2003
Þetta ætlar að verða strembið sumar, sýnist mér á öllu. Námskeiðin í sumar eru nokkuð spennandi en það verður alveg nóg að gera. Ég ætla nú halda mig við það frí sem ég var bún að segja niður í sumar og vinna svo það sem upp á vantar eftir endurhleðslu á líkama og sál.
Monday, May 26, 2003
Nú hefst streðið á ný. Fékk að komast inn í áfangann Nám og kennsla hjá Láru Stefáns, ég er alsæl með það. Var búin að skrá mig í vettvangsnám en ákvað síðan að geyma það örlítið. Ég ætlaði að setja kynninguna mín inn hjá Láru í dag, á WebCT, en þegar inn var komið var ég svo mikill "lonler" að hálfa væri nóg. Ekkert er sjáanlegt og ég ein að ráfa um. Þetta reddast vonandi sem allra fyrst og ég slæst í hópinn.
Lokaverkefnið mitt gekk vel og hópurinn sem ég starfaði með var frábær. Já þá heyrið þið það stelpur, gaman og notalegt að vinna með ykkur!!!

Tuesday, May 20, 2003
Nú er ég búin með verkefnið mitt. Eina sem er að pirra mig er að ég kem ekki PowerPoint glærusýningunni minni út á vefinn, sem er undir linknum "kennsluefni á vef". Fæ allta upp villumeldingu um FTP-error occurred. Ef einhver veit hvað þetta þýðir þá endilega látið mig vita.
kv.
Berglind
kv.
Berglind
Monday, May 19, 2003
Vorum saman hér upp í skóla, Hólabrekkuskóla, að vinna að verkefninu okkar. Nú getum við farið að skila. Ég þarf að vísu að lesa betur yfir hjá mér og lagfæra nokkra smáhluti. Annars er þetta komið.
Thursday, May 15, 2003
Ég get ekki betur séð en ég sé að hafa þetta af. Er að fínpússa til það sem kann og get gert og er bara nokkuð ánægð með útkomuna
Wednesday, May 14, 2003
Jæja við fórum til Grindavíkur í gær og unnum lengi fram eftir kvöldi í lokaverkefninu okkar. Við erum nú að verða búnar og ætlum að hittast á sunnudaginn og fínpússa hlutina. Frú Mogensen tók höfðinglega á móti okkur. Þegar við vorum orðnar þreyttar og svangar fórum við heim tíl Kristínar og fengum alveg frábæra súpu. Kristín lofaði okkur uppskriftinni af henni svo nú er að fylgjast með þegar uppskriftin kemur á vefinn. það verður enginn svikinn af þessari súpu.
Sunday, May 11, 2003
Eins og svo margir aðrir sat ég spennt yfir kosningasjónvarpinu í gær. Þegar leið á nóttina fór ég að ókyrrast og settist fyrir framan tölvuna og byrjaði að spá meira í verkefnið mitt. Þetta verð til þess að ég stóð ekki upp fyrr en kl. 04:00. Þá var kosningasjónvarpið enn á fullu. Ég ákvað að þetta gegni ekki legnur og fór í rúmið. Þegar ég vaknaði svo kl. 09:00 í morgun kom í ljós að síðustu tölur voru að birtast sem réðu endanlegum úrslitum. Það hefði sem sagt ekkert þytt fyrir mig að vaka yfir þessu.
Saturday, May 10, 2003
Nú er ég farin að sjá fyrir endann á lokaverkefninu. Við, sem vinnum verkefnið saman, höfum verið mjög duglegar að vinna og hittast. Við hittumst síðast í dag í KHÍ og unnum mjög vel. Það þótti okkur mjög gott og þarft að gera. Vinnugleðin var orðin svo mikil hjá okkur að ef starfsmenn bókasafnsins hefðu ekki hent okkur út, vegna lokunnar, þá værum við þar kannski enn. Við ætlum að reyna að skila á þeim tíma sem upphaflega var lagt til, 15. maí. Við hödlum okkur við það þangað til annað kemur í ljós.
Thursday, May 01, 2003
Er búin að sitja við að vinna lokaverkefnið í allan dag. Mér miðar svo sem ágætlega áfram en þetta er ótrúlega mikið verk. S.l. þriðjudag hittumst við stöllurnar til að ræða enn frekar lokaverkefnið. Ég vona að við getum skilað því af okkur á réttum tíma, 15 maí. Annars kemur þetta altt í ljós.
Saturday, April 26, 2003
Jæja nú er orðið lant síðan að ég bloggaði síðast, tók mér páskafrí, algjör lúxus með tilheyrandi samviskubiti. Við stöllurnar, Kristin M og Guðrún Jóna, erum farnar að spá allverulega í lokaverkefnið. Hittumst fyrir helgi og lögðum línurnar. Við erum komnar aðeins í gang, það er voða góð tilfinning.
Saturday, April 12, 2003
Í gærkvödli fór ég í partý til Kristínar Steinars, það var mjög gaman og mikil þörf fyrir að setjast niður og spjalla um námið og sitthvað fleira. Takk Kristín að bjóða okkur heim!!! Skoðið endilega myndir sem Kristín tók.
Núna sit hér í tölvustofunni KHÍ og er að læra á Dreamweaver og Fireworks. Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt sumt skil ég alls ekki en annað virðist vera nokkuð einfalt. Annars í augnablikinu þá hef ég mestar áhyggjur af því að myndirnar við vefleiðangurinn minn eru ekki inn á síðunni. Er að finna út hvað fór úrskeiðis.
Veðrið eru svo gott, mig langar út og komast í páskafrí. Ég ætla að taka mér smá frí frá náminu og byrja á fullu strax eftir páska. Annars á ég eftir að sjá mig standa við það.

Tuesday, April 08, 2003
Ég skrapp til London sl. helgi. Þar er allt í blóma og hitinn rokkaði frá 15 -20 stig og sól. Það var svo gott að fá smá nasasjón af því hvernig vorið er. Ég er er farin að þrá að fá betri tíð, þurrari. Þetta varð til þess að ekki vann ég neitt í verkefninu um helgina. Ég ætla að setjast við tölvuna í kvöld og byrja að gera eitthvað að alvöru. Er ekki rétt hjá mér að við eigum að vera búin að gera drög að kennsluvef, en ekki tilbúinn út á netið? Jæja ég ætla að gera það þannig. Það kemur þá eitthvað annað í ljós þegar ég mæti á staðbundnulotuna
Saturday, March 29, 2003
Í gær kóðaði ég inn athugun á netnotkun barna, erfið fæðing en gekk þó upp. Jæja, þetta er þá yfristaðið, langar samt að vita hvernig á að meta þessa vinnu hjá mér. Það kemur hvergi fram, þegar úrtökin eru skoðuð, hvað sé frá mér eða öðrum sem tóku þátt.
Næsta verkefni nálgast. Nú er bara að setjast niður og búa til PowerPoint glæru best að leggja hausinn í bleyti og upphugsa eitthvað snjallt.

Thursday, March 27, 2003
Æ, ég er búin að vera ódugleg að setja inn á bloggið. Nú er ég búin með rannsóknina hjá Sólveigu og á bara eftir að kóða hana inn. Geri það á morgun
Thursday, March 20, 2003
Það er engin blússandi gangur hjá mér í verkefni Sólveigar. Gengur hægt að fá bréf til baka frá foreldrum. Ætli ég endi bara ekki á því að hringja í þá.
Það er kannski helsta ráðið.
Það er kannski helsta ráðið.
Sunday, March 16, 2003
Jæja, mér tókst að koma síðunni UT og ég yfir á ensku
Var búin að gera hana á íslensku fyrir helgi en breytti henni dálitið
Fór í leikhús í kvöld og sá Með fullri reisn. Alveg frábært leikrit, hló mikið og hafði gaman af. Ég mæli með því ef þið hafið hug á að fara í leikhús og sjá einhvern léttleika.

Saturday, March 15, 2003
Nú er ég búin að koma saman síðu um UT og ég
Þó er ég nú ekki búin að snúa henni upp á ensku. Það kemur í kvöld eða á morgun.
Hef einhvern veginn tapað tenglunum í fyrri skrif í dagbókina, veit ekki alveg hvort ég þurrkaði það hreinlega út eða hvað. Það getur kannski einhver sagt mér hvað ég að gera.
Textinn, sem kemur þegar ég ýti á post, áður en ég publisha honum er allur á kínversku eða einhverju einkennilegu letri (máli). Veit einhver hvernig á að laga þetta?

Wednesday, March 12, 2003
Pistlar
Greinagerð til Láru Stefánsdóttur
Þegar við í fjarnámi áttum að fara til Akureyrar á UT2003, í staðbundna lotu, þá hélt ég vestur á bóginn á námskeið/ráðstefnu til Calgary í Canada og kynnti mér hvaða hugbúnað SMART Technologies Inc. framleiðir og einnig þann hugbúnað sem ég er að nota.

SMART Board frá SMART Technologies
Í Calgary sat ég fyrirlestra um rafrænar snertitöflur, SMART Board og hugbúnaði sem tengist þeim í almennri praktík og í kennslu.
SMART Technologies Inc. fyrirtækið er með höfuðstöðvar sínar í Calgary í Kanada. Tengiliðir fyrirtækisins sáu um að uppfræða umboðsaðila og starfsmenn þeirra um vörurnar.
Ég hef sjálf notað SMART Board töfluna í rúmt ár og er ánægður notandi. Að fara út til Kanada og hitta fólkið sem eru heilarnir á bak við vöruna var mjög fróðlegt og ánægjulegt.
Mig langar í þessum pistli að fræða ykkur um töfluna og þann hugbúnað sem nýtist vel í kennslu.
SMART Board töflur eru “rafrænar töflur” sem tengdar eru við tölvu. Myndin varpast fram með skjávarpa. Sú tafla sem skólarnir eru að nota eru hengdar upp á vegg, og skjávarpi í loftið. Til eru töflur sem eru inni í “skáp”. Í skápnum er allt til staðar s.s. video og skjávarpi. Þær töflur eru með 67” skjástærð.
Kostir. Töfluskjárinn virkar alveg nákvæmlega eins og tölvuskjár, allar aðgerðir eru gerðar með fingrinum, og virkar fingurinn sem tölvumús. Kennarinn þarf ekki að vikja frá hvítu töflunni, hann er alltaf til staðar fyrir framan nemendur og allar aðgerðir við innlögn á kennslu verða mjög sjáanlegar. Taflan er auðveld í notkun og þægileg.
Með töflunni fylgja “pennar” sem hafa eingöngu það hlutverk að skrifa með. Ekki er virknin í pennunum heldur í töflunni sjálfri. Nauðsyn pennanna er ekki mikil og skiptir ekki máli hvort penninn eða puttinn er notaður þegar skrifað er,
en er nauðsynlegt verkfæri þegar skrifa á fyrirmæli á töfluna eða gera hring
í kring um áhersluatriði.
Taflan er 72” stór, það þarf að stilla hana þannig að “lágir”kennarar nái upp í efsta horn. Minnisbókin (notebook) greinir ekki íslenska stafi, búið að þýða yfir á 12 tungumál. Vonandi verður hugbúnaðurinn þýddur á fleiri tungumál, þar á meðal íslensku !?
Hugbúnaður frá SMART Technologic Inc.
SynchronEyes
Er hugbúnaður sem keyrir með eða án SMART Board.
SynchronEyes er hugbúnaður sem tengdur er við kennara- og nemendatölvur. Samvirkni er þar á milli. Nemendur tengjast kennaravél “connect”, og geta breytt notendanafni, sem gjarnan er númers á tölvunni í nafnið sitt.
Kennarinn getur séð allar tölvur nemenda á skjánum hjá sér í einu og/eða varpað myndinni upp á hvíta tjaldið hjá sér, eða á SMART Board, sé hún er til staðar. Með þessu móti fylgist hann með öllum á einum stað og nemendur verða meðvitaðir um að fylgst sé með þeim. Oftast eru nemendur meðvitaðir um það. Í mínu tilviki þá læt ég nemendur alltaf vita ef ég er með SynchronEyes virkt.. Fleiri möguleikar, t.d. getur kennari varpað fram spurningu á allar nemendatölvurnar í einu og þeir svara á móti. Nemandi hefur möguleika á að varpa spurningu til kennara sem byrtist upp á kennaraskjáinn. Að lokum getur kennari lokað einstakri tölvu ef nemandi er ekki að fylgjast með eða stelast í miður góðar síður, eða annað sem hann á ekki að vera að gera.
Spjallarásir
Kennarinn getur flokkað nemendur í hópa, ef vill, og nemendur spjallað saman innbirgðis. Þetta er ákaflega skemmtilegur kostur, nemendur hafa gaman af spjalli, og enginn hætta á að einhver utanaðkomandi, með misgóðar hugsanir, þvælist inn á þeirra spjallsvæði.
Quiz - krossapróf
Quiz er hugbúnaður til að búa til krossapróf. Þar getur kennari búið til krossapróf sem tengist samtímis á allar tölvur, ef svo ber undir. Um leið og nemandi hefur þreytt prófið kemur niðurstaða á skjáinn.
Auðvelt er að hlaða inn einungis Quiz, í SynchronEyes pakkanum, inn á ferðatölvu og vinna prófið þar inn, tengja það svo inn á kennaratölvu/nemendatölvur í tölvuveri.
Smart Ideas
Er hugbúnaður sem hannaður er til að búa til flæðirit/skipurit
En sem kennari sé ég hann virka vel í að setja upp sem glæru með áherslupuntum, ekki ósvipað og gert er með hugarkortunum. Möguleikar í notkun eru skemmtilegir og vel hægt að gera ritið/glæruna myndræna Gæti hentað vel við undirbúning þar sem lesblindir nemenndur eru, fyrir utan að vera góð glósugerð sem flestir hafa gott af.
Framtíðarsýn fyrirtækisins er viðamikil, margt spennandi mun koma frá þeim á næstu mánuðum og verður fróðlegt að fylgjast með því. Þeir virðast hugsa mjög mikið um gildi hugbúnaðar inn í skólakerfið sem miðast að því að gera kennsluna þægilega og auðvelda. Ekki veitir af á þeirri tækniöld sem við lifum á í dag.
Þessi ferð var mjög fróðleg. Eins og kannski skín í gegnum greinagerðina þá er ég persónulega mjög hrifin af SMART töflunum og þeim hugbúnaði sem ég fjallaði um hér. Ég vona að þið séuð einhverju nær og hafi haft gagn og ánægju af lestrinum.

Ef einhvern tímann hefur verið mikið að gera, þá er það núna. Það hrúgast inn verkefnin og allt á sama klukkutímann. Þetta verður annasöm ein og hálf vika. Gangi ykkur vel með þau, ég veit ekki alveg hvað á gera með greinarnar (Láru). Á að gera útdrátt eða hvað? Þetta er spennadi!!!!